Illa sett upp af blaðamanni

Kæri blaðamaður sem skrifaði þess frétt, ég vona að þú lesir þetta, hugsir þinn gang rækilega og merkir fréttir framvegis þínu nafni svo það sé hægt að ná í þig.

Hvernig á það að vera möguleiki að upplýsa og fræða landann um geðsjúkdóma þegar þið á mbl.is fjallið almennt ekki um þá, og þegar þið gerið það þá gerið þið það illa og setið bara upp dökka mynd. Það eina sem þú segir í þessari frétt um manninn er að "Í ljós kom að maður­inn er 39 ára og bú­sett­ur í Georgíu í Banda­ríkj­un­um. Hann glím­ir meðal ann­ars við geðhvarfa­sýki og þá hef­ur hann hlotið fang­els­is­dóm fyr­ir ýmsa glæpi". "Glímir við" hvað veist þú um það? Veist þú eitthvað um sjúkdóminn? Ég held ekki. Bara svo að ég fræði þig aðeins þá eru 40% þeirra sem hafa fengið verðlaun sem ljóðskáld í heiminum með geðhvarfasýki. Þvílíkt frjó hugsun og mikil framkvæmdagleði en sjúkdómurinn getur verið skæður séu menn í mikilli óreglu.

Ég hvet þig til að senda mér línu á kryddi@gmail.com ef þú vilt fræðast betur um sjúkdóminn og í leiðinni fræða fólkið okkar betur.

Kv. Kristinn Rúnar


mbl.is Sögðu sæðisgjafann snilling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþolandi helv..

Það er agalegt að horfa á leiki þegar þetta hljóð er í gangi allan leikinn. Það liggur við að maður setji á mute (:
mbl.is HM hljóðfærið 2010 er Vuvuzela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skondið að hann sé að fara í KR

..Þar sem hann og fyrirliði KR, Fannar Ólafsson voru oft að skjóta á hvorn annan.. Ég man að þegar ÍR sló út KR árið 2008 þá reif Hreggviður sig úr treyjunni og hljóp um allt í frostaskjólinu og sagði svo í sjónvarpsviðtali eftir leik "Fannar Ólafsson, svona á að gera þetta"! Það verður fróðlegt að sjá hann í KR ef hann fer þangað.
mbl.is Hreggviður á leiðinni í KR?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður fróðlegt að sjá hvort hann fái að spila í kvöld eftir þetta!!

Ég hef held ég aldrei heyrt leikmann hrauna jafn hressilega yfir þjálfarann sinn. Það verður gaman að sjá hvort hann verði með í kvöld í mikilvægum leik gegn Lille í Evrópudeildinni.
mbl.is Benítez fær á baukinn frá Riera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Van der Sar er fæddur 29 október 1970

..Sem gerir hann 39 ára en ekki 38 ára. Gamli á helling eftir og það er vonandi að hann spili allavegana í tvö ár í viðbót.


mbl.is Van der Sar boðinn nýr samningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þóra #1 , Guðbjörg #2..

Engu að síður tel ég Þóru Bjé eiga að vera aðalmarkvörð á EM næsta sumar og Guðbjörg klárlega varamarkvörð, ég held samt að landsliðið væri ekkert verra statt með Guggu sem aðal..
mbl.is Lúxusvandamál hjá kvennalandsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drepfyndið að heyra í stuðningsmönnum Liverpool alltaf hreint..

Stuðningsmenn Liverpool segja eftir hver einustu kaup "Jáhhh þetta er akkúrat maðurinn sem okkur vantaði, nú vinnum við sko úrvalsdeildina" eeen það er styttra síðan Leeds vann úrv.deildina hahahahaha!!! Að mínu mati á Robbie Keane ekki eftir að gera neinar rósir hjá Liverpool einsog svo fjölmargir aðrir, ekki séns að tveir í röð plummu sig, Torres er að gera fína hluti en Keane á eftir að floppa, klárt mál..

Jæja farinn á þjóðhátíð, þannig að það er ólíklegt að ég geti svarað einhverjum reiðum poolurum :)


mbl.is Keane lék sinn fyrsta leik með Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrir bloggarar og blaðamaður ættu skilið spark í hnéð..

Óþolandi að lesa komment frá sumum bloggurum sem vita ekkert í sinn haus og dæma drenginn harkalega og sumir ganga svo langt að vilja senda hann úr íþróttinni eða í nokkra ára bann.. Þetta fólk hefur sennilega um ævina gert einhvað verra en þetta.

Þessi blaðamaður sem skrifar fréttina er greinilega ræfill með meiru að skrifa ekki undir nafni, einnig ýkir hann þetta hrikalega mikið, hef heimildir fyrir því að strákurinn hafi ekki sparkað í hann heldur rétt danglað.. Missti mikið álit á mbl.is við að lesa þessa frétt, þetta á ekki að vera í fjölmiðlum.. Þjálfari og foreldrar drengsins eiga að taka á þessu máli í sameiningu en ekki athyglissjúkur blaðamaður eða nautheimskir bloggarar..

..Vona að stráknum gangi vel í framtíðinni og haldi áfram í boltanum, hann er búinn að biðjast afsökunar á þessu og það er lítið meira sem hann getur gert í sjálfu sér.


mbl.is Fjórtán ára réðst á dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blikarnir vandræðalega góðir..!

Þetta var rosa leikur í kvöld hjá okkur Blikum, held núna að við séum tilbúnir til að gera einhverja hluti í þessari deild en ekki að vera alltaf bara um miðja deild, kominn stöðuleiki og liðið búið að vinna 4 af seinustu 5 leikjum og við lítum mjög vel út :)
mbl.is Blikar kafsigldu Skagamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja núna segir gaui af sér !

Ótrúlegt hvað skagamenn eru hrikalega lélegir miðað við góðan mannskap, þeir eru næstum jafn lélegir og HK!!! Nú hlýtur gaui þórðar að segja af sér, trúi ekki öðru..
mbl.is Nýliðar Fjölnis lögðu Skagamenn, 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband