Snillingur..!!!!!!!!!!!!!!!

Hahaha þvílíkur snillingur þessi gæji maður, að láta sér detta þetta í hug :D...

Og blaðamaður rólegur á reykdólgur!!! Haha, ég reyki ekki en þetta er örugglega móðgandi fyrir reykingarmenn.


mbl.is Kveikti sér í sígarettu við flugtak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er allt morandi í smákrökkum þarna inni.

Ég var þarna á föstudaginn í smá tíma og ég hitti 2 bekkjarsystur litla bróðir míns sem er í 9.bekk, 14 ára! Ég spurði þær hvernig þær komust inn og þær sögðust hafa notað sama kortið frá stelpu sem er 18 ára, semsagt önnur fór inn, lét stelpu sem er 18 ára sem þau þekktu fara út og rétta hinni kortið og þá fór hún inn.

Annars skil ég ekki af hverju það er 18 ára inn og ekkert mál að kaupa sér áfengi, hélt að maður þyrfti að vera tvítugur til að kaupa mjöð og annað áfengi.


mbl.is Unglingadrykkja á Tropical
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blendnar tilfinningar..!

Ég held að allir geti verið sammála því að stórmót er ekki eins skemmtilegt án Englands en það er samt svo gaman að sjá hvað Englendingar verða snar brjálaðir þegar gengur illa =)... Ég var eiginlega meira fúll en glaður að Ísraelar unnu Rússa, það er náttúrulega algjör snillingur að þjálfa Rússana, Guus Hidding. Ég býst við því úr þessu að England fari áfram, á ekki von á því að þeir tapi á Wembley.
mbl.is Ísrael vann Rússland og England í góðum málum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi!!!

Finnst þetta mjög lélegt hjá Eiði. Það getur ekki verið mikið að hjá honum víst hann spilaði og skoraði fyrir þremur dögum. Maðurinn nennir held ég bara enganveginn að spila fyrir landsliðið, sýnir öllum óvirðingu þegar hann fór á djammið með Kára Árna eftir fyrir leikinn gegn Norður Írum, þeir læddust út um gluggann á miðnætti og Eyjólfur tók svo á móti þeim drukknum í lobbýinu á Hótelinu klukkan 5!!! Hrikalega lélegt.


mbl.is Eiður Smári ekki með gegn Dönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband