Kristinn Rúnar Kristinsson
Ég er 27 ára Kópavogsbúi í húð og hár. Gallharður Bliki í fótboltanum en ég var síðan í tvö ár í Haukunum í körfunni frá 2007-2009. Þar mynduðust mikil tengsl, þannig að ég myndi segja að ég sé Bliki í fótboltanum og Hawks-ari í körfunni... Ég er að berjast fyrir vitundarvakningu um geðsjúkdóma í landinu. Sjálfur er ég með geðhvörf, það lýsir sér í djúpu þunglyndi og svo mikilli maníu (oflæti). Um 80% tímans er ég samt einkennalaus og t.d. yfir þriggja og hálfs árs tímabil frá 2011-2014 var ég alveg stabíll og frábærir hlutir gerðust. Þunglyndið byrjaði þegar ég var tólf ára en manían kom inn árið 2009 þegar ég var tvítugur. Þar með var ég greindur með geðhvörf en veikindin eru hluti af mér sjálfum og hef ég lært gríðarlega mikið af þeim öll þessi ár. Ég myndi aldrei skipta sveiflunum út fyrir „hið venjulega líf". Geðsjúkdómar eru ekki til að skammast sín fyrir, galopnum umræðuna :)
Athugasemdir
vona þín vegna að þetta sé tröll...
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 29.11.2007 kl. 09:22
Þú ert týndi hlekkurinn. Guði sé lof að hann er fundinn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.11.2007 kl. 09:24
Þetta er eins og að finna síðasta geirfuglinn...það er merkisatburður
Jón Ingi Cæsarsson, 29.11.2007 kl. 09:29
Ég skil ekkert í þessum kommentum fyrir ofan. Hvað eruði að tala um???
Kristinn Rúnar Kristinsson, 29.11.2007 kl. 10:04
Æji, hann er bara 18 og ennþá á kynþroskaskeiðinu.
Kristinn minn, einn góðan veðurdag (eftir ca 10-20 ár) þá mun mamma hætta að nenna að hugsa um þig og þú þarft sjálfur að gera það. Afhverju? Jú, því að það er ekki til sú nútímakona sem mun taka hlutverk móður þinnar að sér. Þú munt þurfa að þvo þvotta, kaupa í matinn, elda, skúra, þrífa klósettið osfvs. Svona hafa tímarnir breyst. Ja-há.
Linda (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 10:40
Sammála þér.
Ekki hlusta á þessa hér að ofan, t.d eins og gömlu grámygluna hana Jenný sem bloggar og vælir undan öllu. Annað eins vælublogg og "kellingarvæl" hefur maður sjaldan eða aldrei séð. Þær ættu að finna sér áhugamál, jafnvel vinnu, eitthvað að gera þessar kellingar. Eru skammarlegar fyrir duglegar alvöru íslenskar konur
Haraldur (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 11:20
Já okey! Geri nú þetta sem þú nefndir allt reglulega... En konurnar eiga samt að versla í matinn og kallarnir að gera annað, þú ert greinilega sammála Sóleyju vinkonu þinni, haha.
Kristinn Rúnar Kristinsson, 29.11.2007 kl. 11:22
Flottur Halli, minn maður!
Kristinn Rúnar Kristinsson, 29.11.2007 kl. 11:23
Þessi færsla eins og þín láta fólk eins og Sóleyju líta vel út.
Jón Gunnar Ásbjörnsson (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 13:17
Þú ert yndislegur kallinn, held ætti hreinlega að friða þig !
Sumir ná þessum hæðum, að komast það vel yfir strikið, að það er hægt að hafa gaman af þeim. Leoncie t.d......
Ingimar Eydal, 29.11.2007 kl. 16:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.